Já Benedikt það hafa margar kínarúllur runnið til sjáfar frá því ég var á lækjatorgi þegar ég byrjaði með kínarúlluvagninn þá var ekki um annað að ræða en að leggja bíladelluna til hliðar, bæði engin tími og svo fór illa saman svartar hendur og afgreiðsla á mat (fyrst ég er bleiknefi)
Ég stóð í þeirri meiningu að ég hefði læknast af bíladellunni, ég fór meira að segja með vinnubílinn á verkstæði til að skipta um viftureim
En svo álpaðist ég inn á ebay fyrir ca 3-4 árum síðan og þá blossaði dellann aftur upp, fljótlega var kominn heim í hlað 1958 cadillac fleedwood limo 8 farþega drossía (sem ég seldi nú fyrir stuttu) og Ford AA 1.5 tonna vörubíll (sem ég er að selja núna)
ég á kínarúlluvagnin ennþá en hann er orðin verulega þreyttur þó að ég hafi gert hann upp fyrir um 10 árum síðan, en hann á 25 ára afmæli í vor og verður þá væntanlega fornvagn
ég fann gamla úrklippu úr vísir, ogn setti á bloggið þar sem kroppinbakur er á hliðinni í grjóturðinni við Nýbýlaveg
http://www.bogi.blog.is/blog/bogi/