Wings´n Wheels Tungubökkum 30. ágúst 2014

Allt og ekkert sem við kemur bílum 25 ára og eldri.
Ath. auglýsingar eru ekki leyfðar á þessum þræði.

Póststjórar: jsl, Sigurbjörn

Wings´n Wheels Tungubökkum 30. ágúst 2014

Pósturaf Sigurjón Valsson » 21 Ágú 2014, 09:47

Ágæta fornbílafólk,
Laugardaginn 30 ágúst verður Wings´n Wheel hátíðin haldin á Tungubökkum í fjórða sinn. Eins og undanfarin ár, þá viljum við í skipulagningarhóp hátíðarinnar bjóða fornbílafólk sérstaklega velkomið á svæðið. Svæðið verður opnað almenningi klukkan 12:00 á hádegi og er fornbílum að sjálfsögðu boðið að mæta þá líka! Æskileg viðvera fornbílafólks er á milli 14:00 - 16:30 og verður sérstakt afdrep fyrir fornbílafólk í klúbbhúsinu á flugvellinum þar sem boðið verður upp á kaffi.

Sérstök fésbókarsíða hefur verið sett upp fyrir hátíðina, og þar er hægt að skoða myndir frá fyrri hátíðum. Allar sérstakar tilkynningar vegna hátíðarainnar verða settar þar inn. Fésbókarsíðan er: https://www.facebook.com/tungubakkarwingsandwheels

Allar spurningar er hægt að senda á póst sigurjon2011@gmail.com, með því að hringja í síma 8584286 eða hafa samband í gegnum facebook

Fyrir hönd skipulagningsnefndar,
Sigurjón Valsson
Sigurjón Valsson
Þátttakandi
 
Póstar: 10
Skráður: 31 Ágú 2010, 15:51

Fara aftur á Almennt Fornbílaspjall

Hver er tengdur

Notendur að skoða þetta svæði: Engir skráðir notendur og 2 gestir

cron