Síða 1 af 2

Kúba 2015

PósturSent inn: 11 Feb 2015, 18:40
af Gaui
Sælir félagar. Ég var á þriggja vikna ferðalagi um Kúbu, tók mikið af myndum og margar bílamyndir. Nú ætla ég að reyna að setja þær inn og fá ykkur til að segja mér allt um bílana, tegund árgerð og ekki verra fl. upplýsingar.

https://www.flickr.com/photos/skyggn/sets/72157650700488386/

Ég fæ myndina ekki til að byrtast öðrvísi en svona sem er allt í lagi mín vegna.

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 11 Feb 2015, 19:57
af hallif
þetta er nú skemmtilegra svona finnst mér :D
Mynd

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 11 Feb 2015, 20:02
af Gaui
Það er það, ég kann ekki?

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 11 Feb 2015, 20:38
af hallif
Það er þetta sem er að ganga frá þessari síðu, mönnum þykir þetta of mikið mál að setja inn myndir og kanski er ekkert hægt að breyta því og hvar eru leiðbeiningar?

Til dæmis er ég með myndirnar mínar í Dropbox, og myndir sem ég ætla að setja hér inn er ég með í public og minnka þær niður 700, og copy public link, svo yfir á síðuna klika á Img passa að bendilinn sé á milli (Img)( Img ) svo paste

Mynd

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 11 Feb 2015, 21:06
af Gaui
Ég er með fjöldann allann af myndum, mér er hálf illa við að setja þær allar í fullri stærð inn á Flickr síðuna, svo ég ætla mér að minnka þær mikið og reyna að fá upplýsingar um bílana. Ég prófaði fyrst að kópera staðsetninguna úr dálknum efst og svo paste við Img en það gekk nú ekki hjá mér.
Jú maður mundi vera miklui viljugri við innsetningu mynda ef það væri ekki svona snúið.
Annars var ég að vona að með þessu hjá mér færu menn af stað og tjáðu sig um bílana, fá örlitla hreyfingu á síðuna.

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 12 Feb 2015, 06:33
af jsl
Ef myndir eru ekki á netinu (sem flestir eru með á Dropbox, Google+, Flicker (verður auðvitað að vera opið svæði), OneDrive, skýjum sem fylgja símum og spjöldum eða hvað þetta allt heitir) þá er bara að velja mynd
posting.php.jpg

og eftir að búið er að sækja hana þá velja hvar hún á að vera
posting.php (1).jpg
og hægt að annað hvort skrifa í kringum hana eða beint við hvern file fyrir sig.
posting.php (1).jpg (12.25 KiB) Skoðað 15244 sinnum

og hægt að annað hvort skrifa í kringum hana eða beint við hvern file fyrir sig.

p.s. Hjálp er efst á síðunni
posting.php (2).jpg
posting.php (2).jpg (38.7 KiB) Skoðað 15244 sinnum

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 12 Feb 2015, 18:25
af Gaui
Þetta er þá sennilega 55´Chevrolet?

https://www.flickr.com/photos/skyggn/16511021942/

Step by step á íslensku upplýsingar til að setja myndir inn af Flickr, ef hægt væri?

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 12 Feb 2015, 18:34
af Gaui

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 12 Feb 2015, 18:35
af Gaui
Og hvers konar bíll er þetta? Ég sé að margir skoða en enginn kemur með neitt um bílana, veit ekki einhver?

https://www.flickr.com/photos/skyggn/15891875513/in/photostream/

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 12 Feb 2015, 23:57
af Bjarni567
Í fljótu bragði giska ég á Willis og WV Bjöllu

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 13 Feb 2015, 03:31
af jsl
Gaui skrifaði:Step by step á íslensku upplýsingar til að setja myndir inn af Flickr, ef hægt væri?


Þú verður að finna url-ið á viðkomandi mynd undir þínum aðgangi og setja hann inn og merka hann sem Img, virkar ekki að linka á photostream nema þá bara til að senda fólk á safnið.

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 13 Feb 2015, 10:01
af Gaui
Bjarni567 skrifaði:Í fljótu bragði giska ég á Willis og WV Bjöllu
Willis og árgerð kannski eitthvað meir?

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 14 Feb 2015, 17:57
af Bjarni567
Sæll
Ég var nú bara að giska fynst hann 40's Willis legur en man ekki eftir þeim með svona glugga fyrir aftan hurðir. En eins og ég sagði bara ágiskun.

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 14 Feb 2015, 22:55
af Þórður Ó Traustason
Ég segi að þetta sé 36-38 Chevy.Hallast helst að því að þetta sé 37.

Re: Kúba 2015

PósturSent inn: 15 Feb 2015, 15:02
af Z-414
Svona lítur þetta betur út, flestir gera þau grundvallarmistök að setja inn slóðina á síðuna sem myndin er á en það verður að setja slóðina á myndina sjálfa til að hún birtist svona í spjallinu, ef það er ekki gert birtist bara slóð sem hægt er að smella á til að opna síðuna.

Mynd