Hvernig setja á inn ljósmyndir með innleggjum.

Ath. auglýsingar eru ekki leyfðar á þessu spjallborði nema á viðkomandi stöðum.

Póststjóri: jsl

Hvernig setja á inn ljósmyndir með innleggjum.

Pósturaf webmaster » 29 Jan 2005, 12:02

Til að setja inn mynd eða myndir í innleggjum þarf myndin að vera vistuð á einhverri heimasíðu á netinu, því að spjallvefurinn geymir ekki myndir.

Ef myndin sem þú villt sýna er ekki á netinu að þá verðurðu að koma henni þangað fyrst. Til þess er hægt að fá sér frí myndaalbúm t.d. hjá http://www.123.is/ http://picasa.google.com/ http://groups.msn.com http://www.cardomain.com eða www.go.is. Á þessum síðum geturðu búið til einkaheimasíðu fyrir þig og sent þar inn myndir og þar með vistast þær á netinu.

Þegar myndin er komið á netið eða er þar fyrir er eftirfarandi aðgerðir framkvæmdar til að koma mynd inn í innleggið.

Þú ferð inn á heimasíðuna á netinu þar sem myndin er vistuð. Til að sýna þetta betur hef ég valið mynd til að setja inn í þetta innlegg á þessari síðu http://www.stjarna.is/1955/10.htm

Þú velur þér mynd á síðunni, (eða opnar einhverja mynd) í þessu tilfelli er valin svarthvíta myndin af bílnum þarna efst á síðunni hér að ofan. Síðan hægrismellir þú á myndina, ferð í "Properties", hægrismellir á textann við hlið "Address (URL)", sem er slóð myndarinnar á netinu, velur "select all" og þá verður slóðin svört, hægrismellir á sverta slóðina og velur "copy". Í þessu dæmi er um að ræða: http://www.stjarna.is/1955/images/SAG1.jpg

Síðan ferðu inn á umræðuborðið og hægrismellir í innlegginu þar sem þú ætlar að myndin á að vera t.d hér og velur "paste" þá kemur slóðin svona:


http://www.stjarna.is/1955/images/SAG1.jpg


Síðan dekkirðu slóðina (bara stafina og ekkert umfram) og smellir á "Img" hnappinn hér fyrir ofan þannig að slóðin líti næstum svona út á skjánum (aðeins breytt til hún sjáist hér)

Mynd :wink: og þá ætti að koma mynd þegar þú skoðar eða sendir inn innlegg. Æskilegt er að velja skoða áður en valið er senda til að ganga úr skugga um að allt hafi heppnast.


Svona :wink:


Mynd



Samið af Rúnari Sigurjónssyni fyrir www.stjarna.is og byrt hér með hans leyfi.
webmaster
Umsjón
 
Póstar: 5
Skráður: 25 Mar 2004, 12:35

Fara aftur á LESTU ÞETTA FYRST !!!!!!!!

Hver er tengdur

Notandi að skoða þetta svæði: Engir skráðir notendur og 1 gestur

cron