Póststjórar: jsl, Sigurbjörn
Ramcharger skrifaði:Þessi Amazon er bara töff eins og hann er þarna
krúsi skrifaði:Hvað finnst mönnum með að hafa ekkert króm á honum?
krúsi skrifaði:"Been there done that"Ramcharger skrifaði:Þessi Amazon er bara töff eins og hann er þarna
Já svona vil ég hafa hann, en takmarkið er að gera hann aðeins mattaðri
svo er greyið aðeins kominn með öldrunarsjúkdóm sem þarf að meðhöndla með http://en.wikipedia.org/wiki/Iron og betri málun
Hvað finnst mönnum með að hafa ekkert króm á honum?
Heimir H. Karlsson skrifaði:
Varðandi mattsvart, þá var ég varaður við því fyrir rúmlega 20 árum, þegar Litli Guli Opelinn minn var sprautaður eftir fyrstu uppgerð.
Mattsvart á húddi og brettum tókst frekar illa.
Konan mín og bílamálarin okkar náðu þó hárrétta upprunalega mattsvarta litnum við endurmálun og uppgerð á bílnum fyrir 3 árum.
Notast var við gamla GM litakóðabók, og snilli bílamálarans.
Málunin tókst afburða vel.
Þó fór að bera á nokkurskonar röndum í mattsvarta fletinum eftir ca eitt ár.
Rendur sem liggja þvert á málunarstefnu, og virðast ekki vera í neinu samræmi við eitt eða neitt sem tengist málun eða lakkmeðhöndlun bílsins.
Ég hef grun um, að mattsvarta lakkið þoli illa glansþvottasápu sem ég þvæ bílinn með.
Ef einhver þekkir eða veit eitthvað um rétta meðhöndlun og þrif á matsvörtu lakki, þá eru hugmyndir um slíkt vel þegnar.
Kveðja,
Heimir H. Karlsson.
Notandi að skoða þetta svæði: Engir skráðir notendur og 1 gestur