af Siggi Royal » 28 Júl 2009, 11:05
Áþessum myndum má vel þekkja Taunus 12M Cardinal 62, 3, Skoda 1201 og mikið "raritet" Volvo Duett, "splitt window". Taunus 12M var einn af fyrstu framdrifsbílum, sem komu til Íslands og spunnust ýmsar skemmtisögur af eigendum þessara bíla. Ein var sú að eldri borgari á Akureyri fékk sér svona bíl nýjan og var harla ánægður með hann. Þá um veturinn gerði snjóa mikla á Akureyri, einsog oft áður. Setti karl keðjur undir bílinn og fór hann allra sinna ferða á honum og hældi bílnum mikið fyrir hversu góður hann væri snjó. Er leið að vori ákvað hann að láta smyrja bílinn. Uppgötvaði hann þá, sér til mikillar furðu að drifið var á framhjólunum, en keðjurnar hafði hann sett að aftann. Fjórði bíllinn á myndinni, sá blái, myndi ég giska á að væri Moskvits.
Sigurður Rúnar Magnússon Sími: 615-7116
fairmont ghia 79
cj2a 46
cj6 64