Ég fékk bjartsýniskast og ákvað að setja hérna inn hvort einhver myndi eftir, ætti mynd eða vissi um chevrolet novu.
En þannig er mál, að mamma man eftir frænda sínum sem ók um á novu, en það eru orðin nokkuð mörg ár síðan en hana hefur alltaf langað í þessa/svona novu segir hún, af því hún man eftir frænda sínum á þessum bíl
En því miður eru til litlar upplýsingar um bílin og engin mynd af honum hefur fundist enþá
En hann er árgerð einhverstaðar á bilinu 1970-1975, Guðmundur hét hann sem átti bílin og hann hefur líklega verið með eitthvað A númer þegar hann átti hann afþví hann bjó á akureyri. hann var einhvernvegin svona dökkbrúnn á litin.
Ég sé það núna þegar ég renni yfir textan að ég hefði líklega allteins getað sleft þessu því upplísingarnar eru litlar sem engar
en það sakar ekki að reyna
kv
Guðmundur