Sæl öll!
Ég hef haft áhuga á gömlum hlutum gegnum tíðina og altaf langað í gamlan bíl. Er sérstaklega hrifin af gömlum jeppum. Hef látið mig dreyma um að finna gamla Scout-inn okkar. Þegar ég var lítil keypti pabbi International Scout sem hann tók algerlega í gegn og breytti (sprautaður rauður og allar endur klæddur að innan). Var virkilega fallegur bíll.
Það væri nú gaman að vita hvar þessi er í dag:
INTERNATIONAL SCOUT, rauður, 1978
Seldum hann í kringum 1988-89. Síðasti skráið eigandi bjó einhverstaðar í dreifbýlinu á Þórshöfn.
Mig langar mikið til að vita hvort hann sé ennþá til ? Ef einhver kannast við þetta,má hinn sami láta mig vita.
Takk fyrir
Margrét