af Offari » 30 Okt 2010, 12:41
Ég vinn nú í Álveri en þekki samt ekki réttu leiðina til að geta fengið súrál í miklu magni þaðan. Þegar ég bjó fyrir norðan var ekkert mál að taka sand nánast hvar sem er sigta hann og þurka og blás svo út í guðsgrænni náttúruni.
Hér fyrir austan sýnist mér vera nægur sandur (mikill sandur hér við Breiðdalsvík) en aldrei hægt að stóla á þurrviðri til að hægt sé að blása og sprauta bíla utandyra. Ég verð bara að skreppa norður til að gera það.