Ef einhver ætlar að henda Q-jettinum sínum má sá hinn sami endilega láta mig fá hann.
Þetta er með vönduðustu blöndungum sem smíðaðir hafa verið, enda á bókstaflega öllum framleiddum 4 hólfa GM vélum frá '65 til '80, nota bene líka á vélum sem skiluðu alvöru afli. Yfir 100 miljón framleidd eintök. Það er hægt að stilla svona blöndung fyrir nánast hvaða götuhæfa vél sem er.
Af hverju telurðu að blöndungurinn sé sökudólgur í aflmissi? Ef vélin er upprunaleg eða lítið breytt og var með Q-jet eru litlar líkur á að fá skárri blöndung og þú þarft líklega ekki að breyta honum neitt.
Hvernig vél, eitthvað breytt, hvaða kveikja, á hvaða tíma er hún sett, hvað flýtir hún mikið í mekaník gráðum, vaccum gráðum og hvernig er vaccum tengt?
Annars færðu allt í Q-jettinn þinn í ameríkuhreppi. Taktu niður auðkennisnúmerið á honum og pantaðu það sem vantar eftir því, fyllir ekki meira en í umslag og komið eftir nokkra daga.
Fyrir þá sem vilja fara ofan í saumana á hvernig á að tjúna Q-jettinn og hvernig hann virkar, þá er hægt að gúgla 'How to Tune a Q-Jet by Lars Grimsrud' og lesa það plagg.
Svo getur maður líka keypt sér súrefnismæli eins og
LM-2 frá Innovate motorsports og notað hann í stillingarferlinu eins og því er lýst í skjalinu hans Lars.