Bílnúmer. G-670

Vantar þig hjálp? Villtu hjálpa öðrum?

Póststjórar: jsl, Sigurbjörn

Bílnúmer. G-670

Pósturaf Guttormur » 13 Maí 2015, 21:05

Heilir og sælar/sælir

Ég hef undir höndum steðjanúmer G-670. sem ég hef haft lengi uppí hillu,
Er einhver með skrá yfir síðasta eiganda þessa númers ?
Samkv. Samgöngustofu var VW 1976 skráð með þessu númeri í eigu Erlendar Árna Ahrens og síðar Hjartar Bergstad.til 1997 en sagan nær líklega eitthvað nær í tíma. Er nokkur þarna á spjallinu sem getur rakið skráningu þessa númers lengra ? (eða nær í tíma)
Tel víst að ég hafi fundið þetta númer á ferð minni uppí Botnsúlur, en það liggur slóð frá Svartakoti yfir Leggjabrjót og niður í Botnsdal en á þeirri leið er lækur og fleiri torfærur og þar var þetta númer eitt sinn á vegi mínum. Getur verið að Steingrímur Hermannsson ráðherra hafi haft þetta númer á sínum bíl ? Einhver sagði mér það en það, en ég hef ekki fengið það staðfest,
Bestu þakkir . Guttormur.
Guttormur
Byrjandi
 
Póstar: 1
Skráður: 13 Maí 2015, 20:46

Fara aftur á Tæknihorn

Hver er tengdur

Notendur að skoða þetta svæði: Engir skráðir notendur og 2 gestir

cron