Sæl öll
Hugrún heiti ég og hef hingað til ekki verið mikið að spá í fornbílum.
Fyrsti bíllinn minn var Fiat 127, árg 80 eða 82 og ég hef alla tíð séð eftir að hafa selt hann.
Ég man enn eftir lyktinn í honum, bilaða gorminum í aftursætinu, þegar ég bónaði hann í fyrsta skipti og ýmislegt fleira
Í mörg ár hef ég keyrt framhjá svona bíl sem stóð á eyrinni á Akureyri og nú er hann til sölu, en þar sem ég hef bara lítið sem ekkert vit á að gera upp bíla get ég víst ekki fengið mér hann þar sem hann þarfnast mikillar ástar.
Því ætla ég að líta í kringum mig hvort fleiri svona týpur af Fiat séu til á landinu, ja eða varahlutir í þessa bíla.
Kannski einn daginn fæ ég draum minn uppfylltan