Komið þið sælir og sælar.
Ég var rétt í þessu að skrá mig á spall Fornbílaklúbbsins og hlakka ég mikið til að eyða stundum hér á spjallinu.
Nú þegar hef ég fundið áhugaverð umræðuefni og skemmti mér við að lesa þau og fræðast af notendum síðunnar.
Föðurbróðir minn var nú svo almennilegur að GEFA, já ég sagði gefa mér bifreið af gerðinni Chevrolet Suburban Scottsdale 20 árgerð 1979.
Hann er á Þ númeri svo kannski kannast einhver hér við hann.
Kram er í ágætu lagi, hann keyrir sæmilega en bodý er orðið frekar lélegt. Það þarf að ráðast í viðgerð á því fljótlega.
Í honum er 350 mótor og trukkagírkassi (fjögurra gíra).
Ég hef notað þennan bíl dálítið en nú get ég farið að nota hann meira.
Hvernig er það hjá Fornbílaklúbbnum, er ekki alveg í lagi fyrir mig, ef ég væri í klúbbnum, að breyta bílnum eftir mínu höfði?
Þurfa bílarnir nokkuð að vera alveg original útlítandi?
Mig langar annars vegar mjög mikið til að hafa þennan bíl á ca 37-38" dekkjum.
Jafnvel að setja undir hann 4-link system og gorma en þá er ég kominn frekar langt út fyrir það sem framleiðandi lagði upp með.
En á hinn bóginn langar mig alveg að hafa hann á original dekkjastærðinni.
Þetta verður erfið ákvörðun
Ég er ekki búinn að fá bílinn afhentann en fæ hann eftir rúma viku og set þá myndir af honum hingað inn
*EDIT*
Það er rétt að taka það fram að bíllinn á prófílmyndinni minni er EKKI bíllinn sem ég fékk gefins EN samt samskonar bíll. Bara mun betur farinn en minn