Sælir.
Ég er tvítugur drengur úr Borgarfirðinum með rosalega Benz-dellu Aðalega eru það nú eldri Benzarnir sem eru að heilla mig.
Sjálfur á ég þrjá Benza;
M-733. Þetta er uppáhaldið mitt. Mercedes Benz 280 SE árgerð 1980. Pabbi gaf mér þennan því ég suðaði svo mikið í honum En afi minn átti bílinn þar á undan en gaf síðan pabba hann. Bíllinn var fluttur inn notaður árið 1987. Hann er beinskiptur, 4 gíra með 2,8 L, 185 hestafla vél. Bíllinn er ekinn 267.000 km. Þennan bíl ætla ég að eiga alla mína ævi. Hann er í mjög góðu standi en samt er margt sem má bæta eins og í flestum gömlum bílum
...svo á ég líka þennan;
Þetta er Mercedes Benz 230 E árgerð 1984. Þennan bíl keypti ég í maí 2005 af Rúnari Sigurjónssyni sem var búinn að gera mikið fyrir bílinn. Hann er beinskiptur, 5 gíra með 2,3 L, 136 hestafla vél. Bíllinn er ekinn 307.000 km. Þennan bíl er ég búinn að auglýsa til sölu á 170.000 kr.
...svo er það sá nýjasti í safninu;
Þetta er Mercedes Benz 230 E árgerð 1991. Þennan bíl keypti ég núna fyrir nokkrum vikum. En ég var nú ekki búinn að eig'ann lengi þegar það var dúndrað aftaná mig á Reykjanesbrautinni. Málið er núna í tryggingunum og það kemur í ljós á næstu dögum hvort að gert verður við bílinn eða hvort hann verður borgaður út. Ég vill að það verði gert við hann, enda er þetta mjög heillegur og fallegur bíll. En bíllinn er sjálfskiptur með 2,3 L, 132 hestafla vél. Hann er ekinn 247.000 km.
Já það verður ekki fleira í bili