Jæja, fyrst svona 15-25 ára dálkur er kominn þá ætla ég að skella inn 20 ára gömlu toyotunni minni.
Keypti þennan í haust og hefur verið í hægri yfirhalningu. Boddý var farið að láta á sjá, þá sérstaklega sílsar og afturgafl. Kram er í nokkuð góðu lagi, bíllinn allavega keyrir..hehe.
Búinn að skipta um afturdempara, kúplingu, balancestangarenda ofl smotterí. Búið að er að riðbæta afturgafl að mestu.
Svona var hann þegar ég fékk hann
Vel skítugur þegar ég náði í hann. (takk elías )
Hérna er hann kominn inn, verið að skipta um olíu á mótor, taka sílsakitt af, skoða ryð ofl
Innrétting í nokkuð góðu lagi
Prufuðum aðeins að massa upp afturbrettið. það varð rautt, hehe. En bíllinn verður heilmálaður.
[/quote]
Búið að sandblása kantinn kringum afturrúðu og þarf að ryðbæta þar
Komin bót fyrir þetta gat
Lalli Yfir suðumaður að slípa
Jæja, búið að festa þetta
Langt kominn með að taka hljóðeinangrunina úr
Og svo er þetta það sem koma skal. Verður allt tekið í gegn
[/quote]
Stefnan var að komast á rúntinn í sumar, en það verður ólíklegt, en vonandi