af Siggi Royal » 03 Mar 2010, 21:11
Þessi skemmtilega Fiat umræða vekur upp minningar. Ég átti Fiat 1100 1954 og Fiat 1400 1958, þessir voru sérstakir að því leyti, að þeir höfðu eina þokulugt í miðju grillinu. Einneginn Fiat 600, 1960, með sjálfsmorðshurðum, sem ég gaf kærustunni í afmælisgjöf, þegar hún var 17 ára 1972. Það er sjálfsagt óþarfi að taka fram, enda skilja það allir Fiat aðdáendur, að hún er ennþá með mér. Síðan kom Fiat 124 sport. 850, og svo nokkrir Polski Fiat 125 frá 1972 til 82. Þann síðasta Polski Fiat 1978, gaf ég að Ystafelli til varðveizlu fyrir 3 árum. Hann var keyrður 37000 km.
Sigurður Rúnar Magnússon Sími: 615-7116
fairmont ghia 79
cj2a 46
cj6 64