http://www.jsl210.com/markadur/index.ph ... mfromid=15
Mér sýnist þetta vera Fury-inn sem tilheyrði bakarafjölskyldunni á Grensásveginum.
Hann var tekinn rækilega í gegn upp úr 1980, sett í hann 8cyl vél, sjálfskipting, ný teppi, sætin bólstruð og bíllinn sprautaður í blásanseruðum lit. Líklega sama lit og er á myndinni í auglýsingunni.
Þessi bíll stóð síðan upp úr 1990 úti á planinu bak við Grensásveginn og sást þá greinilega frá gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar. Þá var farið að sjá á honum.
Kannast einhver við þetta?