Man alltaf eftir tveim '77- og uppúr, bílum sem stóðuvið Vatnagarðana, við hliðina á húsinu við Honda umboðið. Stóðu þar í portinu í einhver ár. Þetta hefur verið fyrir 10-15 árum síðan, seinna stóðu þeir við hús á Fosshálsinum, götunni beint fyrir ofan Ölgerðina, trúlega rétt eftir aldamót. Veit ekki hvað varð af þeim eftir það.
Svo var einn svartur lengi vel á götunni, hann er reyndar '76 árg. En ég held hann (mynd) sé kominn upp á Geymslusvæði og sé farinn að fara frekar illa. Veit ekki um fleiri slíka bíla.
Hér er mynd af mínum gamla '74 MK1 og þeim svarta, myndir teknar trúlega um 1994.
Kv. Magnús Sigurðsson.
www.musclecars.is 1971 Chevrolet Nova
1969 Mustang Sportsroof / Mach-1
Kunningi minn átti ca 1976 fjólubláann með svörtum vínil toppi sem var með 3000 vél ´70 árgerð minnir mig og með númerið G 1925. Held hann hafi keypt hann frá Akureyri. Mjög sprækur bíll og skemmtilegt að keyra hann.Veit ekki hvert hann seldi hann.