Ákvað að setja sér þráð um þetta verkefni um w123 bílinn minn G-71, sem að ég keypti af Rúnari ( Mercedes Benz hér á spjallinu ) í haust.
Þegar að þessi bíll kom til landsins hafði hann þann leiðinlega galla að hafa lent í trjákvoðu sem að ekki var þrifinn af toppi, húddi og skotti, einnig efri hluta af bretttum, þannig að hún hafði étið sig í gegnum glæruna og skemmt lakkið.
Einnig hafði bíllinn lent í hagli ( stóru ) og var allur toppur, húdd og skott í litlum beyglum, þetta var allt vitað þegar að ég keypti bílinn og var haldið af stað með að fá tilboð í að mála bílinn fyrir ofan lista sem að tókst á endanum.
Verkið byrjaði á mánudag 14. mars :
Nýtt húdd fylgdi með þannig að það var sótt :
Byrjað var að vinna í bílnum á fullu :
Á þessu stigi var ég boðaður á fund að skoða gripinn ( vissi af nokkrum auka ryð-doppum ) :
Svo var aðeins komið í afturbrettin, þannig að það var tekin ákvörðun um að taka allan bílinn , þessa ákvörðun hefði ég aldrei tekið nema vegna þess að þessi bíll er svo fáranlega góður að eftir þessa aðgerð verður hann að mínu mati besti w123 á landinu
Soðið í hægra frambretti undir stuðara :
Hægra afturbretti :
Og svo rest í bili :