Keypti þennan hvíta C123 bíl árg 1983 í ágúst 2010. Hann hefur verið á götum þessa lands frá árinu 1986. Einn eigandi á Íslandi frá því hann var fluttur inn, hjón á Selfossi og var hann þar á götunni allt til ársins 2006 þegar bílnum var lagt. Hann var búinn að standa í ein 3 ár í geymslu í Njarðvík (1 ár í skúr á Selfossi) þegar ég keypti hann í ágúst 2010.
Varðandi búnað þá er þessi bílll með topplúgu sem er rafmagns en svo handsnúnum rúðum og speglum Hann er með svörtu leðri sem er ótrúlega vel með farið fyrir utan smá ýfingar í bílstjórasæti, vélin er 2.3 L og rýkur í gang í hvert sinn sem maður snýr lyklinum, hann er 5 gíra beinskiptur og bara þónokkuð skemmtilegur þannig. Fyrsti bsk Benz-inn sem ég á um ævina.
Myndir af honum eins og hann var þegar ég fékk hann
Myndir frá ferlinu á sprautuverkstæðinu, þar sem hann var sandblásinn og svo pússaður niður í beran málm, áður en stálið var sýruþvegið fyrir, grunn, sprautugrunn og loks sprautun
Afturhliðarrúða bílstjóramegin
Framrúða
Farþegahurðin
Farþegahurðin
Afturendinn
Bílstjórahurðin
Afturendi
Þakið og topplúgan
Afturbiti
Fyrstu myndirnar daginn eftir sem body-ið var sprautað:
Svona var hann orðinn ári eftir að ég fékk hann í mínar hendur... Verkefnið er óðum að skríða saman...
Í dag er staðan sú að ég er að bíða eftir að fá lúgu í bílinn þar sem sú sem var í honum var ónýt af riði og ekki hefur gengið að fá nýja hér á Íslandi. Kem með frekari myndir og uppfærslu þegar bílinn er tilbúinn.
Kveðja