Síða 1 af 1

Escort XR3i

PósturSent inn: 01 Jan 2014, 21:02
af Hjalti
Nú eru að verða tvö ár frá því að ég eignaðist Escort XR3i árg. '86 til að koma aftur á götuna. Var lengi búinn að horfa í kringum mig eftir einhverju prójekti og var ekkert sérstaklega að horfa eftir svona bíl. Hins vegar þegar maður fór að spá í hvað væri að verða sjaldgæft í dag þá beindust augun að GTi eða Turbo bílunum frá 9. áratugnum sem eru nánast horfnir enda var vinsælt að tuska út úr þeim. Þessi XR3i á sér dæmigerða sögu, samtals 17 eigendur en hann var aðeins á götunni í rétt rúm 10 ár! Samt var honum bjargað einhverra hluta vegna og komst m.a.s. á götuna í ca. eina viku 2005 eftir einhverja standsetningu en var svo klesstur að framan (þriðja skráða klessan í ferilskránni) sem kannski varð til þess að hann bjargaðist. Að taka að sér þennan bíl er þó stærra verkefni en ég hafði upphaflega hugsað mér. Nú er staðan þannig að búið er að ryðbæta, kaupa mikið af hlutum í gegnum eBay og Mekonomen og láta rétta hann... var alveg rammskakkur að framan. Nú er að koma að því að raða saman; skipta um allt í bremsum, fóðringar, dempara, bensíntank, bensínleiðslur og fleira. Síðan næst vonandi að mála í ár. Markmiðið er að hann verði sem mest original haldi sínu 80's looki. Væri gaman að geta komist á rúntinn í sumar en það verður bara að ráðast. Hér eru nokkrar myndir en annars er ég með þráð á vef Bílaklúbbs Akureyrar fyrir þá sem vilja http://spjall.ba.is/index.php?topic=5328.0.

Picture 011.jpg
Eins og hann var eftir standsetningu 2005.
Picture 011.jpg (171.08 KiB) Skoðað 23347 sinnum


P2250322.jpg
Í upphafi árs 2012
P2250322.jpg (183.66 KiB) Skoðað 23347 sinnum


DSCN0662.jpg
Kominn í skúrinn aftur eftir réttingu
DSCN0662.jpg (199.8 KiB) Skoðað 23347 sinnum

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 02 Jan 2014, 23:41
af gmg
Töff bílar, gaman að þessu og ég hlakka til að sjá þennan á rúntinum [4

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 25 Apr 2014, 18:53
af Hjalti
Þessi er kominn í gang og fer í sprautun á næstu dögum.
P3283873.jpg
Staðan 28. mars
P3283873.jpg (293.45 KiB) Skoðað 22970 sinnum

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 27 Apr 2014, 19:36
af Gunnar Örn
Virkilega gaman að svona verkefnum, gangi þér vel.

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 30 Apr 2014, 23:48
af gmg
Flott, gaman að sjá Escort !

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 10 Ágú 2014, 23:26
af Hjalti
Kláraði að ganga frá honum að utan um helgina, styttist mjög í prufutúrinn.

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 15 Ágú 2014, 01:00
af Derpy
guuullfallegur! gæti slefað yfir þessu, otrulega flottur á þessum felgum og original :)

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 17 Ágú 2014, 16:57
af Gunnar Örn
Mikið er þetta huggulegt hjá þér. [4 [4

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 25 Ágú 2014, 20:29
af JBV
Geggjaður !! [4 [4

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 21 Sep 2014, 22:44
af Hjalti
Þá er búið að klára þetta bílskúrsverkefni og bara gaman á rúntinum.

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 22 Sep 2014, 20:54
af gmg
Glæsilegur, til lukku með þetta !

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 28 Sep 2014, 20:21
af eyjok
Hrikalega flottur hjá þér [4

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 14 Mar 2015, 02:06
af pattzi
Mér hefur alltaf langað í svona þessi er töff :D

Re: Escort XR3i

PósturSent inn: 25 Apr 2015, 21:33
af Lex
Þessir voru töff í den og gaman að sjá svona flott eintak er enn til á landinu