Veit einhver hvort það eru til einhverjar læsingar í svona scout 800 ? ég keypti mér ný kerti í "bjölluna" setti þau í í dag og fór að prófa hana í snjónum á 38" , og svo stoppaði hún í einni brekku spólandi á tveim auðvitað. Þá fór ég að hugsa hvort það væru til læsingar í svona litlar hásingar? ef einhver veit eitthvað um þetta mál má sá og hin sami endilega tjá sig um málið.
jæja. Nú er maður búin að vera.. jaa segi kanski ekki alveg duglegur, en það er eitthvað búið að gerast í þessum. ákvað að skella inn nokkrum myndum.
2 1/2 pund í dekkinu og það varla dalar
boddýfestingin riðguð í sundur og gerði ekkert gagn
Þarna hefði verið gott að eiga beygjuvél
Og ég vil bara taka það fram að þetta er mitt fyrsta riðbætingarverkefni og það útskýrir kanski afhverju þetta er ekki allt alveg 100% En það má alltaf betrumbæta allt í framtíðinni þegar maður verður orðin reyndari í þessu. Og svo Vona ég bara að þið hafði gaman af þessum myndum
Síðast breytt af Guðmundur Ingvar þann 10 Jún 2010, 22:29, breytt samtals 1 sinni.
nei því miður, þetta hefur gengið frekar rólega fyrir sig. Og tímin einhvervegin þítur áfram án þess að það gerist eitthvað stórvægilegt (undarlegt alveg) en góðir hlutir gerast hægt eins og einhver sagði og vil ég meina að það eigi mjög vel við í þessu tilfelli hehe. En hún er allavega komin með sitt pláss inní skúr. og ég dunda í henni svona annað slagið. En annars ef einhver veit um frambretti á 1303 bjöllu (þessa) má sá hin sami endilega láta mig vita.
alltílagi þakka þér fyrir. þá held ég að sé ekkert annað í stöðunni en að prófa að panta svona og máta við, kemur þá bara í ljós hvort það verður hægt að nota það eða ekki. Eða veit einhver annars hvort það er hægt að fá svona tilbúin riðbætingarstikki vinstramegin aftan bogan sem brettið boltast svo á (innra brettið)??
Guðmundur Ásgeirsson
mitsubishi galant (daglega)
vw bjalla (í uppgerð)
ýmislegt meira dót.