af thor_man » 02 Apr 2013, 19:54
Man vel eftir þessum svarta Dart '63 m. hvítri blæju, svo vel að mér tókst næstum að nudda dósinni minni utan í hann á Miklubrautinni er ég var að reyna að komast framfyrir til að sjá framan á hann og átta mig á árgerðinni. Hélt nefnilega að þetta væri yngri bíll og varð hissa er ég sá grillið... Þá var hann frekar hár að aftan og gott ef ekki á krómfelgum. Þetta var '74-'75, átti dauðmáttlausan Taunus '67 þá, fyrsti bíllinn. Er og hef alltaf verið Mopar-maður enda á pabbi enn Dodge vörubíl fra '46 sem ég ólst upp með í sveitinni... Sé að það var sami bíll og sem vísað er í á BA-spjallinu hér að ofan...