Þá er boddyð komið í hús og er að vinna í því að fá það sandblásið,þetta er ótrúlega heillekt boddy þarf að skifta um aftur gólf, hluta af fram gólfi og karið undir bensín tánk,aftur gaflinn er með hann nýan,hliðar lítið skemmtar,hvalbakur góður nema þar að skyfta um plötuna í mælaborði búið að saga úr því Ætla að taka aftur hjólskálar úr því og sandblása á milli svo í aftur. vantar hægra fram bretti ef einhver veit um.
Þetta boddy er snemma árs 1942 þannig að þetta er alveg eins og boddy sem var á 47624.
Það er ekki altaf gott að finna f merkið hjá ford þetta er á slökkvutækja haldarnum.
Það eru menn enn að tala um að það sé hægt að kaupa Willys jeppa í kössunum á $50....sá síðasti á Fornbílaklúbbs sýningunni. Þjóðsaga sem vill ekki deyja. Jú, það voru til jeppar í kössum, síðustu sennilega í Belgíu um 1950. Og þeir voru aldrei seldir á $50. Var í sambandi við gamlan læknir í USA. Hann keyfti 1943 MB jeppa af hernum eftir stríð, 2 ára gamlan og vel notaðan. Þurfti að borga $600 fyrir hann. Hvers vegna ætti þá ónotaður nýr að á fara á $50?
Þessi draugasaga um $50 jeppana kemur sennilega út frá svindl auglýsingum í gömlu hasarblöðunum, þar sem var auglýst "Jeep in crate $50?" Takið eftir spurningarmerkinu. Þú áttir að senda $3 til að fá upplýsingar, en það eina sem þú fékkst sent var listi yfir fyrirtæki sem seldu surplus dót frá hernum.
Ég sé að fóturinn á slökkvitækist festingunni hjá þér er líka brotin af eins og á Vopna. Sýnist þú þurfa að kaupa nýjar festingar líka. Ætla að kaupa repro F merkta festingu á $35 og skera af til að laga upprunalega stykkið.
Kv
Hinni
Hinrik Steinsson
White M2A1 Halftrack '41
GPW '42 x 2 / MB '41 / M38A1 '53
Dodge WC52 '42
Royal Enfield x2, BSA M20 '42,
AJS G3 '40, Norton 16H '40
Chevy 1503 '57 "US Army" type
Belgíski, Norski og Gríski herinn eru búinir að vera að selja frá sér allt WWII dót sem þeir eiga. Ég er búin að versla svolítið af NOS Ford GPW pörtum frá manni í Grikklandi sem kemur beint úr gömlum birgðastöðvum hersins. Sennilega voru allir þessir jeppar seldir einstaklingum.
Hinrik Steinsson
White M2A1 Halftrack '41
GPW '42 x 2 / MB '41 / M38A1 '53
Dodge WC52 '42
Royal Enfield x2, BSA M20 '42,
AJS G3 '40, Norton 16H '40
Chevy 1503 '57 "US Army" type
Miklir hillurekkar. Voða mikið af svona rekkum í Bauhouse? Maður getur gengið þar um allann daginn án þess að finna það sem maður leitar að, en ýmislegt annað sem maður vissi ekki að væri til. Ég skal svipast um eftir þessum jeppum næst þegar ég fer þangað, það þýðir ekkert að spyrja starfsfólkið, kassafólkið veit ekkert um svona lagað, og það eru ekki aðrir sem "Vinna" þarna.
gaman að finna,að ekki er allt komið í brotajárn fann þetta öndunar rör og áfyllingar rör,svona á þetta að vera í 47624, en í hann var komið áfyllingrör með skrúfuðu loki ,og öndunin var komin í rör sem var lagt upp í soggrein.
öndunar rörið með f merktum bolta,og leifar af grárri málningu vélarnar í GPW voru málaðar gráar
áfylingarörið ,og f á kvarðanum.
Síðast breytt af hallif þann 10 Mar 2013, 09:31, breytt samtals 2 sinnum.
Vél fundinn með Raðnúmer 51275 sem er það læðsta no sem sem eg hef séð og getað fengið í 47624, þessi blokk verður notuð í 47624. Vélin sem var í 47624 var með leiðinlega háu númeri