Daginn,
Ég er að taka upp stuttmynd næstu helgi í Hvammsvík í Kjós.
Myndin gerist sirka 1962-1969.
Svo myndin verði sem flottust, raunverulegust og samkeppnishæf þurfum við að hafa umhverfið alvöru.
Mig langaði að athuga hvort þið gætuð hjálpað okkur með eftirfarandi (eða komið okkur í samband við rétta aðila):
1) Að finna gamla traktora sem við gætum mögulega notað í leikmynd.
2) Sama með gamla bíla - fólksbíla eða jeppa.
Myndin er tekinn upp 1-3.des (lau-mán).
Við munum taka upp á Stóra Botn, Littla botn og Hvammsvík í Kjós.
Ef þið hefur aðgang að slíku, eða símanúmerum hjá einhverjum sem getur mögulega aðstoðað okkur, væri hjálpin vel þegin