af Hjalti » 25 Jan 2014, 10:07
Hér er A-889 sem var Willys MB árg. '42 sem pabbi minn átti í 11 ár eða frá 1948 til 1959. Mig minnir að pabbi hafi sagt að þessi herjeppi hafi verið fluttur inn gegnum Heklu (mikið) notaður líklega frá Bretlandi. Hann var á G-númeri þegar pabbi keypti hann. Var með blæjunni og alles en síðan smíðaði pabbi, sem var smiður, á hann þetta vandaða fulningahús og lengdi milli hjóla til að gera hann að betri brúksbíl.
- Á ferðalagi á Austurlandi, hér stillt upp á brúarstólpa gömlu brúarinnar yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði.
- Gosi&jeppinn-Jokulsarbru_2.jpg (119.2 KiB) Skoðað 15465 sinnum
Síðast breytt af
Hjalti þann 26 Jan 2014, 13:41, breytt samtals 2 sinnum.
Hjalti Jóhannesson
Akureyri
Willys CJ-2A, A-1297, 13.12.46 - 2. eigandi
Escort XR3i, 12.12.86 - 18. eigandi