Bara gaman af þessu. fyrsta skellinaðran mín var Yamaha MR 50 og mig minnir að hún hafi verið árgerð 1976 eða '77.
síðan eignaðist ég Suzuki GT 50 og hún var sennilega ´80 eða 81 módelið. Á þessum eðal hjólum keyrði maður í öllum veðrum allt árið á milli Voga á Vatnsleysu og Keflavíkur í skóla. Eina ævintýraferð fór ég upp í kjós á súkkunni. Væri gaman að finna svoleiðis súkku til að gera upp.
Gangi þér vel með uppgerðina á þessum hjólum.
Helgi Biering.
Fiat X1/9 Bertone '80